145. löggjafarþing — 41. fundur, 26. nóv. 2015.
alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.
91. mál
Herra forseti. Ég er hingað komin til að segja að það sem hv. þm. Jón Gunnarsson sagði að ég hefði staðið fyrir á síðasta kjörtímabili eru ósannindi. Það sem umræður gengu út á og samþykkt þingsályktunartillaga gekk út á var hvernig ætti að hækka í áföngum framlög til þróunarsamvinnu til að ná lágmarksviðmiði sem Sameinuðu þjóðirnar setja, sem er 0,7% af vergri landsframleiðslu. Að halda öðru fram eru ósannindi og er alls ekki hægt að láta liggja hér í loftinu ómótmælt.