145. löggjafarþing — 41. fundur,  26. nóv. 2015.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.

91. mál
[11:49]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér fjöllum við um hvernig við ætlum að koma fyrir framkvæmdarvaldinu og Þróunarsamvinnustofnun. Hvernig varð það til? Jú, í skýrslu reynds fagmanns í málaflokknum var ráðherra sagt að þetta væri skynsamlegasta leiðin. Við ætlum að greiða atkvæði um það. Síðan er hér fjallað fram og til baka um eitt og annað er varðar Þróunarsamvinnustofnun og að við höfum ekki lagt nægilega peninga í hana. Peningarnir koma ekki úr prósentutölum. Þeir koma úr krónutölum. Krónutölurnar hafa farið snarhækkandi. Öll viljum við gera eins vel og hægt er og jafnvel betur en við höfum staðið við fram til þessa. Þess vegna hefur ríkisstjórnin meðal annars lagt fjármuni í gegnum flóttamannatillögur sínar inn í alþjóðaþróunarsamvinnu. Ríkisstjórnin er líka með tillögur varðandi loftslagsmálin sem koma til með að styðja við þróunarlöndin. Ekki er hægt að sjá skýrari vilja ríkisstjórnarinnar og stjórnarmeirihlutans. Við viljum gera mun betur (Forseti hringir.) en við höfum getað gert. Hér erum við hins vegar að gera grein fyrir atkvæði okkar um það hvort framkvæmdarvaldið eigi að hafa þennan háttinn á eða annan hátt með það hvernig við stýrum þróunarsamvinnunni. (Gripið fram í.)