145. löggjafarþing — 41. fundur,  26. nóv. 2015.

opinber fjármál.

148. mál
[17:02]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Frú forseti. Það væri gaman að blanda sér aðeins í orðaskiptin hér á undan milli hv. þingmanna Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, en hv. þingmaður gengur nú úr salnum og hefur augljóslega ekki áhuga á því að fylgjast meira með þessari umræðu, enda ætla ég að eyða tíma mínum aðallega í annað. En ég ætla að nefna tvö rit sem menn geta þá lesið sér til ef þeir vilja fara aðeins dýpra inn í þetta mál, afraksturinn af hagstjórn Sjálfstæðisflokksins og á löngum köflum í sögu þessa lýðveldis í samstarfi við Framsóknarflokkinn. Þetta eru þeir tveir flokkar sem ýmist saman eða stundum hvor í sínu lagi hafa farið með völdin í þessu landi að uppistöðu til frá stofnun lýðveldisins með allt of fáum hléum þar á milli. Þessar heimildir, þessi rit eru skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis og greinargerðin með frumvarpinu hér þar sem farið er mjög hörðum orðum um mistök ríkisfjármálastefnunnar á umliðnum árum og áratugum og í raun og veru tekur hana í nefið eins og ég hef þegar vitnað í. Og allir þekkja niðurstöður skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sem felldi dauðadóm yfir hagstjórninni og rakti þau gríðarlegu hagstjórnarafglöp sem gerð voru á Íslandi frá því upp úr aldamótunum og fram að hruni þar sem nánast allt var gert vitlaust sem hægt var að gera vitlaust. Það er bara niðurstaðan af rækilegustu rannsókn og úttekt þeirra aðila sem ég held að við hljótum að geta treyst umfram flesta aðra sem voru valdir til þess verks að leiða rannsóknarnefnd Alþingis.

Ég ætla í fyrsta lagi í seinni ræðu minni að líta aðeins inn í framtíðina. Ég átti satt að segja ekki von á því að komast svona fljótt að aftur því að ég átti von á miklum umræðum um þetta mál út þennan dag og jafnvel lengur og satt best að segja að minnsta kosti hálffullum þingsal þegar þetta stóra mál er hér á ferð, en ætla mætti annað en að það skipti einhverju verulegu máli. Hér hefur verið frekar dræm mæting í dag og umræðurnar ekkert óskaplega miklar það sem af er.

Í 9. gr. frumvarpsins er frekar snubbótt grein um að ráðherra skuli eigi sjaldnar en á þriggja ára fresti leggja fyrir Alþingi skýrslu þar sem fram komi mat á líklegri þróun samfélags-, atvinnu- og umhverfisþátta og lýðfræðilegra breytna til næstu áratuga og áhrifa þeirra á afkomu, fjárhagsstöðu og skuldbindingar opinberra aðila. Þetta er til mikilla bóta svo langt sem það nær. Þarna örlar loksins fyrir þeirri hugsun að horfa inn í framtíðina og reyna að leggja einhverjar línur varðandi nauðsynlega þróun ríkisfjármála og opinberra fjármála í ljósi þess sem vænta má, t.d. í sambandi við lýðfræðilega þróun í landinu. Síðan er í 33. gr. fjallað um hið sama en þá er verið að víkja að skyldum hvers ráðuneytis um sig, að meta jafnframt langtímahorfur á viðkomandi málasviði. Þetta er þeim mun mikilvægara vegna þess að hér á að færa aðferðafræðina yfir í ramma og þeir rammar þurfa að byggja á framtíðarsýn um hlutfallslega skiptingu tekna hins opinbera til einstakra málefnasviða. Nærtækt er þar að taka málefni aldraðra eða heilbrigðismál og velferðarmál í ljósi væntanlegra lýðfræðilegra breytinga. Við þekkjum öll þá spá sem fyrir liggur um tvöföldun eldri borgara á næstu 15–25 árum og hvað það mun væntanlega þýða fyrir útgjöld á þessu sviði.

Þessi vinna verður að vera mjög vönduð því að annars nást ekki markmiðin um sæmilegan frið um þá ramma sem hér eiga að skipta fjármunum. Það liggur í eðli þessarar aðferðafræði að heilbrigðismálin muni þurfa að auka sína hlutdeild í ríkisfjármálunum í takti við hinar lýðfræðilegu breytingar og rammar þess málaflokks verða þá að byggjast upp inn í framtíðina í takti við það. En ég held því miður að við séum alls ekki nógu vel undir þetta búin, ekki landið sem slíkt og hvað þá einstök ráðuneyti sem hafa takmarkaða burði til að vinna þetta, að minnsta kosti eins og staðan er í dag. Þau þyrftu að eflast verulega ef þau ættu að ráða við slíkt verkefni.

Ég hef lagt fram þingmál um að setja í farveg undirbúning að því að gera þjóðhagsáætlanir til langs tíma og nokkrir hv. þingmenn flytja það ásamt mér. Á þskj. 114 er tillaga til þingsályktunar um undirbúning að gerð þjóðhagsáætlana til langs tíma og að hvetja til þess að framkvæmdarvaldið, forsætisráðherra og fjármálaráðherra setji þennan þátt þessara mála í fastmótaðan búning og undirbúning vegna þess að þetta vantar sárlega. Ég held að það hafi ekki orðið nein sérstök framvinda í þessu frá því að ég var að glíma við þessi mál og fann tilfinnanlega fyrir því hversu illa við erum sett að þessu leyti, m.a. vegna þess að við höfum enga þjóðhagsstofnun, enga hagfræðisérstofnun sem getur unnið slíka vinnu. Það er ekki hlutverk Hagstofunnar sem slíkrar sem er tölfræðiskrifstofa. Ég tala nú ekki um ef á að fara yfir í þessa aðferðafræði, ramma, og ef það á að reyna að kíkja inn í framtíðina með reglubundnum hætti þá þarf að leggja grunninn að því að það sé gert á trúverðugan hátt og hann er ekki til staðar í dag. Þess vegna þarf að fara í vinnu af því tagi sem þingsályktunartillagan kveður á um.

Í öðru lagi vil ég nefna samþættingu við málefni og fjármál sveitarfélaganna sem fjallað er um í frumvarpinu, ekki síst í 11. gr. um samskipti og samráð ríkis og sveitarfélaga. Þetta tel ég vera ákaflega mikilvægt og er áframhaldandi þróun á því sem ráðist var í á síðasta kjörtímabili að stórefla og bæta samstarf ríkis og sveitarfélaga að þessu leyti og ná utan um hin opinberu fjármál í heild. Þarna á árlega að leita samkomulags við ríkið um sameiginleg markmið hins opinbera á sviði fjármála þar sem meðal annars á í viðræðum ríkis og sveitarfélaga að ræða fjármögnun opinberrar þjónustu og tekjur sveitarfélaga og verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga árlega í aðdraganda þess að ráðherra leggur fram sína fjármálastefnu og fjármálaáætlun 1. apríl ár hvert, ef ég man rétt. Ég hef lesið í þessa grein nánast það að við séum að færa okkur yfir í danskt fyrirkomulag um árlegar samningaviðræður ríkis og sveitarfélaga um þessa hluti. Ég fagna því vegna þess að ég held að við eigum að fara að líta í miklu ríkari mæli á fjármál hins opinbera sem eina heild. Það skiptir ekki máli gagnvart landsmönnum og þeim sem njóta þjónustunnar hvort hún er veitt af ríki eða sveitarfélagi í sjálfu sér. Afkoman þarf að vera sambærileg og þetta ætti líka að draga úr hættunni á því að misgengi verði í afkomu annars vegar ríkisins og hins vegar sveitarfélaganna eins og við erum því miður að horfa upp á um þessar mundir.

Að öðru leyti er þetta mál fyrst og fremst vinnulag á næsta kjörtímabili og það verður í höndum þeirrar ríkisstjórnar sem fer með völdin á Íslandi á næsta kjörtímabili að vinna samkvæmt þessu í heild sinni ef ekki verða einhverjar breytingar á. Nú verður vonandi önnur ríkisstjórn þar við völd en sú sem hér er og vegna þess að þetta stendur svona af sér í tíma hefði verið mjög æskilegt að um málið væri alger samstaða. Það er talsverð samstaða um meginlínurnar í því og það er vel, enda er þannig til málsins stofnað og margir sem eiga aðild að því í gegnum tíðina. En ég verð að viðurkenna að það voru mér nokkur vonbrigði að meiri hluti fjárlaganefndar skyldi ekki vera tilbúinn til að koma t.d. til móts við sjónarmið okkar vinstri grænna um ekkert svo veigamikil en þó mjög táknræn atriði eins og þau að taka inn í regluverkið nákvæma og viðurkennda skilgreiningu á því hvað sé átt við með sjálfbærni opinberra fjármála, að þar sé átt við hina viðurkenndu skilgreiningu sjálfbærnihugtaksins og horft til allra þátta sjálfbærrar framvindu.

Sama gæti ég sagt um 7. gr., hina undarlegu útvistunargrein þar sem í upphaflegu frumvarpi eða upphaflegum drögum á vinnu nefndarinnar var talað um 10% en allt í einu skutu 25% upp kollinum, að hægt væri án samþykkis fjármálaráðuneytisins að færa verkefni yfir í samninga við einkaaðila einfaldlega innan ráðuneytis. Nú er verið að bakka því niður í 15 með breytingartillögu en ég tel að þetta sé mjög undarlegt ákvæði ofan í þær heimildir sem eru til gerðar þjónustusamninga og annarra slíkra hluta í dag, með þeirri aðferðafræði að það er að sjálfsögðu samþykkt af þeim ráðherra sem fer með fjármálin.

Það er rétt hjá hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni að þetta regluverk leysir ekki í burtu hinn pólitíska ágreining í efnahagsmálum eða ríkisfjármálum, alls ekki. Jafnvel þótt menn væru algerlega 100% sammála um þetta verða áfram væntanlega skiptar skoðanir og áherslumunur á því hvernig eigi t.d. að takast á við tilteknar efnahagsaðstæður. Ef erfiðleikar berja að garði á að takast á við þá með niðurskurði eða tekjuöflun eða blöndu? Hvert á að vera umfang samneyslunnar í hagkerfinu? (Forseti hringir.) Að sjálfsögðu leysir þetta ekki í burtu ágreining um hann. Einhverjir kunna að eiga það til á komandi árum að reyna að fara að skýla sinni pólitík á bak við það að hún hafi unnið sigur í þessu máli, því er ég ósammála. (Forseti hringir.) Þetta er hvorki til vinstri né hægri. Öguð og vönduð ríkisfjármál eru ekki pólitísk í eðli sínu. Við hljótum öll að vera sammála um þau.