145. löggjafarþing — 42. fundur,  27. nóv. 2015.

opinber fjármál.

148. mál
[11:40]
Horfa

Kristján L. Möller (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Fulltrúi okkar í fjárlaganefnd, hv. þm. Oddný G. Harðardóttir, hefur gert grein fyrir afstöðu okkar, þingflokks Samfylkingarinnar, í þessu máli svo ég bæti ekki meiru við það. Ég ætla þó að taka eitt dæmi af því sem gerist við þessa breytingu, dæmi sem mér er ákaflega hjartfólgið og hef oft rætt um á Alþingi.

Ef við tækjum til dæmis við fjárlagagerð fyrir næsta ár ákvörðun um að byrja að byggja Landspítala á fullu mundi 50–70 milljarða upphæð færast í ríkisreikning á því ári sem ákvörðun er tekin og auðvitað breyta mjög miklu um niðurstöðu þess dæmis þótt við ætlum svo að byggja spítalann á fimm árum. Hér er gerð sú breyting að við byggingu Landspítalans verður hann gjaldfærður og eignfærður og Landspítalinn getur þá á næstu árum afskrifað eins og gert er í almennum fyrirtækjarekstri í landinu og komið til móts við viðhaldsþörf o.fl. Þetta tel ég til mikilla bóta og auðvelda okkur mjög að taka þá stóru og miklu ákvörðun sem við þurfum að taka (Forseti hringir.) sem við erum vonandi öll sammála um, að byrja að byggja nýjan Landspítala sem allra fyrst.