145. löggjafarþing — 42. fundur,  27. nóv. 2015.

opinber fjármál.

148. mál
[11:41]
Horfa

Ásta Guðrún Helgadóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Þetta frumvarp er stórt skref til þess að auka gagnsæi og traust á fjárlögum og hinu opinbera. Við píratar munum greiða fyrir framgöngu þessa máls og erum sérstaklega ánægð með að sjá breytingartillögu þess efnis að allar tölur og öll hrágögn verði gefin út á tölvulesanlegu formi sem mun hjálpa til við að auka gagnsæi fjárlaga og vonandi vera til bóta upp á framtíðina.