húsnæðissamvinnufélög.
Ég þakka þingmanni enn á ný fyrir framlag hans í umræðu um húsnæðismál. Ég ítreka það sem ég sagði, menn verða að horfa á heildarmyndina. Ég minni á að veruleg fjárframlög til húsnæðismála eru í meðferð þingsins, sitja í fjárlaganefnd. Ég geri ráð fyrir að 2. umr. muni verða á næstu dögum varðandi tillögurnar sem snúa að fjárlagafrumvarpinu. Það eru fleiri frumvörp sem ég gæti nefnt.
Þetta frumvarp er mjög mikilvægt. Búið er að lofa úthlutun á byggingarleyfum á umtalsverðum fjölda íbúða sem byggjast meðal annars á þessu frumvarpi þar sem horft er til þess að styrkja stöðu húsnæðissamvinnufélaganna og gera þau öflugri og betri til að geta tekist á við þessi stóru verkefni, að fjölga íbúðum.
Ég hvet velferðarnefnd til góðra verka. Við höfum reynt eins og hægt er að taka tillit til þeirra athugasemda sem komu fram í vor við meðferð málsins, höfum líka átt í góðu samráði í haust við þá sem hafa tengst málinu, meðal annars aðila vinnumarkaðarins og Samband íslenskra sveitarfélaga. Ég ítreka að ég veit að velferðarnefnd þekkir þetta mál, veit hversu mikilvægt það er til að við getum haldið áfram að styðja fjölskyldurnar í landinu og tryggja þeim val á húsnæðismarkaði, hvort sem eru eignar-, leigu- eða búseturéttaríbúðir.