húsnæðissamvinnufélög.
Virðulegur forseti. Það eru engar ýkjur að segja að ekki bara þingið allt heldur þjóðin, hygg ég, hafi verið að bíða allt þetta kjörtímabil sem nú er sigið á seinni hlutann á eftir því að sjá einhverjar aðgerðir af hálfu ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum. Ekki síst auðvitað fyrir unga fólkið og þá sem hafa lítið handa á milli til að ráða við að fara inn á húsnæðismarkaðinn og hafa strítt við mikla erfiðleika, háa leigu á almennum markaði og lítið af úrræðum. Talsvert hefur verið talað um að það ætti að koma til móts við þennan hóp eða leggja áherslu á úrlausnir í þeim efnum en efndirnar hafa nær engar verið utan það sem hafðist í gegn hjá aðilum vinnumarkaðarins á síðastliðnu vori. Áherslur ríkisstjórnarinnar hafa einvörðungu verið á þá sem eiga eigið húsnæði. Þannig er náttúrlega býsna eftirtektarvert það sem kallað var leiðrétting og var endurgreiðsla á hluta af verðbótum til þeirra sem höfðu verið að kaupa húsnæði og Framsóknarflokkurinn, farandi með húsnæðismál í ríkisstjórninni, var hvatamaður að, að hún skyldi einvörðungu ná til húsnæðis í einkaeigu en ekki til verðbóta sem lögðust á samvinnufélög. Er þó sá stjórnmálaflokkur trúlega grundvallaður á samvinnuhugsjóninni umfram aðra flokka og menn hefðu getað haldið fyrir fram að flokkurinn hefði ákveðna afstöðu til þess að styðja skyldi samvinnufélög eða að minnsta kosti ekki láta þau liggja eftir þegar ráðist væri í leiðréttingar á verðbótaþætti húsnæðislána annarra í landinu.
Þetta var nú sem sagt þannig að húsnæðissamvinnufélögin lágu eftir og síðan leigjendurnir sem sannarlega höfðu fengið mikla hækkun á sinni leigu í hruninu og þeirri verðbólgu sem fylgdi en fengu enga leiðréttingu á þeim hækkunum eins og við hin sem áttum okkar íbúðarhúsnæði. Þetta sýnir auðvitað þær pólitísku áherslur sem ráðið hafa för hjá núverandi ríkisstjórn á kjörtímabilinu sem við sjáum nú senn hilla undir lokin á. Það eru þeir sem eiga eigið húsnæði sem hafa verið í forgangi um framlög úr ríkissjóði. Fólkið í húsnæðissamvinnufélögunum og fólkið á leigumarkaðnum hefur setið eftir og ekki einu sinni fengið sambærilegan stuðning og hinir sem eiga sitt húsnæði heldur einfaldlega ekki fengið hlutdeild í þessari stóru aðgerð. Það er mjög miður því það verður bæði til þess að gera erfiða stöðu fólks á leigumarkaði verri en ella en verður líka til þess að draga úr mönnum við það að reyna að koma á húsnæðissamvinnufélögum ef það er afstaða stjórnvalda að þau félög eigi ekki að njóta sambærilegrar fyrirgreiðslu eins og þegar við kaupum okkur sjálf húsnæði.
Það er þess vegna kannski ekki mikil alvara á bak við þau orð ráðherrans að þetta sé mikilvægt form og beri að styðja það og styrkja. Í reynd hefur ríkisstjórnin einfaldlega í þeim úrræðum sem hún þó hefur beitt sér fyrir í húsnæðismálum skilið þetta form eftir. Hér er reyndar verið að skýra réttarstöðu og bæta úr ýmsum atriðum í löggjöfinni sem tilefni hefur gefist til að fara yfir á undanförnum árum, en frumvarpið mun ekki leiða til þess að auka framboð á húsnæði af þessu tagi á komandi missirum og enn síður þegar fyrir liggur að viðamiklar aðgerðir eins og leiðréttingin ná ekki til félaga af þessu tagi. Það verður ekki til að hvetja til þess að fjölga úrræðum af þessu tagi.
Við í Samfylkingunni höfum litið á það sem algert forgangsmál að grípa til úrræða í húsnæðismálum og höfum á þessu kjörtímabili í þrígang flutt viðamiklar tillögur um aðgerðir í því efni sem hafa verið kynntar í þingsal og hafa gengið til nefndar, farið til umsagnar og þær hugmyndir sem þar hafa verið settar fram hafa fengið stuðning úr öllum áttum. Stjórnarmeirihlutinn hefur hins vegar lagst gegn því að þær væru afgreiddar og samþykktar á þinginu hvað eftir annað með vísan til þess að félags- og húsnæðismálaráðherra væri að vinna að frumvörpum sem von væri á. Það er af því að segja að nú þegar nálgast næstu alþingiskosningar bólar enn ekkert á þeim frumvörpum. Þau eru bara enn þá í ferli. Ef þau koma fram, ef þau verða samþykkt sem lög frá Alþingi, verða þau fyrst og fremst verkefni fyrir næstu ríkisstjórn og næsta félags- og húsnæðismálaráðherra að gera að veruleika og framkvæma. Það verður því miður augljóslega ekki mikið af framkvæmdum á þessu kjörtímabili eins og sjá má af því að það eru liðin rúmlega tvö og hálft ár af kjörtímabilinu án þess að nokkurt frumkvæði hafi verið að því að koma upp hvorki leiguhúsnæði í nokkrum mæli né úrræðum í húsnæðissamvinnufélögum í nokkrum mæli að heldur.
Þær tillögur sem við höfum lagt fram í þinginu eru meðal annars þær að jafna fjárstuðning ríkissjóðs við þá sem eiga húsnæði annars vegar og hina sem leigja húsnæði hins vegar. Það eru tillögur sem unnar voru á síðasta kjörtímabili og kynntar undir lok þess en tókst ekki að lögfesta fyrir kosningar. Það er mikið réttlætismál að þær bætur sem ríkissjóður greiðir til að styðja fólk til húsnæðiskaupa séu hinar sömu til þeirra sem kaupa húsnæði og hinna sem leigja. Verkefnið er jú hið sama. Fólk er bara að afla sér húsnæðis til að búa í sjálft og eftir atvikum með fjölskyldu sinni. Það er fullkomlega eðlilegt að ríkið styrki fólk til þess um sömu fjárhæðir og með sama hætti hvort sem það á sjálft íbúðina eða leigi á almennum markaði eða hvort eitthvert húsnæðissamvinnufélag sem það er aðili að á íbúðina. Jafnvel er ástæða til að styrkja fólk enn frekar ef það er á leigumarkaði en okkur hin sem þó höfum verið í aðstöðu til að eignast okkar eigið húsnæði. Því er öfugt farið. Það erum við sem eigum húsnæði sem fáum meiri stuðning úr ríkissjóði en hinir sem basla á leigumarkaðnum fá minni bætur úr ríkissjóði. Þess vegna höfum við lagt til að þetta einfalda sanngirnissjónarmið verði lögfest, að fólk fái sömu bætur hvort sem það er á leigumarkaði eða í eigin húsnæði.
Þá höfum við lagt til að veitt verði sérstök viðbótarlán þeim sem eru að kaupa í fyrsta sinn og þurfa aðgang að lánsfjármagni til að geta komið sér upp fyrstu íbúð sinni. Við höfum af þessu býsna góða reynslu áður og fyrr meir. Hér voru undir lok síðustu aldar meðal annars lánaflokkar allt upp í 100% í gamla verkamannabústaðakerfinu fyrir eignalítið fólk til að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Það merkilega kom í ljós að það fólk sem ekkert eigið fé átti til að leggja fram í húsnæði og þurfti að fá lán fyrir 100% kaupverðs stóð ef eitthvað var betur í skilum en hinir sem höfðu eitthvert eigið framlag fram að færa. Við höfum af því reynslu að það hefur reynst vel að hjálpa þeim sem ekki geta haslað sér völl sjálfir á húsnæðismarkaði og leggjum til að þeim verði veitt viðbótarlán til að hjálpa þeim að kljúfa útborgun og greiða hana á tilteknu árabili til baka með vöxtum sem vaxtabætur og annar slíkur stuðningur hjálpar til við. En til þess þarf að forgangsraða þessum málum á fjárlögum ríkissjóðs.
Við höfum líka lagt til að ríkið beiti sér fyrir því að lóðir sem það á víðs vegar og ekki síst á höfuðborgarsvæðinu séu nýttar til þess að leggja undir leigufélög til að auka framboð af leiguhúsnæði á sanngjörnu verði. Því miður hefur það sjónarmið ekki orðið ofan á hjá núverandi ríkisstjórn. Hún hefur lagt áherslu á að selja þessar lóðir á sem allra hæstu verði eins og til að mynda sala á lóðunum við Ríkisútvarpið nýlega sýnir. Með því er í raun og veru verið að stuðla að því að hækka íbúðaverð eins og mögulegt er í stað þess að skapa möguleika á því að byggja húsnæði á hagkvæmum kjörum sem hægt er að leigja á sanngjörnu verði til fólks sem er í þörf fyrir húsnæði.
Það eru sömuleiðis tillögur sem lúta að endurskoðun á einstökum ákvæðum í byggingarreglugerðinni sem er að finna í tillögum okkar í Samfylkingunni. Það eru líka tillögur um að stuðningur við sveitarfélög vegna fjármögnunar á félagslegu húsnæði verði hinn sami hvort sem verið er að sækja lánsfé í Íbúðalánasjóð eða á hinn almenna fjármálamarkað. Sömuleiðis tillögur um stofnstyrki og margvíslegar aðrar aðgerðir.
En eins og ég segi, þrátt fyrir að þessar tillögur hafi hlotið góðan hljómgrunn, fengið undirtektir margra í þinginu og þeirra sem fengið hafa tillögurnar sendar til umsagnar ein þrjú þing í röð, þá hefur stjórnarmeirihlutinn ekki léð máls á að ráðast í þessar aðgerðir utan þó eina sem við finnum í fjárlagatillögum hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra á þessu hausti. Það er tillaga um að leigusalar þurfi ekki að greiða fullan tekjuskatt af einni íbúð sem þeir hafa í útleigu. Mér skilst að það sé orðinn hluti af tillögum fjármálaráðherra á þessum vetri og er þá einhver viðleitni hjá honum í að koma til móts við þær fjölþættu tillögur sem við í Samfylkingunni höfum lagt fram. Það var nú kannski ekki fyrsta tillagan sem við sjálf hefðum gert að veruleika. Það væru auðvitað tillögurnar sem snúa að leigjendunum sjálfum og unga fólkinu sem þarf að fá möguleika á að hasla sér völl á íbúðamarkaðnum fremur en tillögur sem lúta að leigusölunum, virðulegi forseti, með fullri virðingu.
Það verður líka að segja að aðgerðaleysi hefur ekki bara ríkt um þessi atriði allt þetta kjörtímabil heldur snýr það líka að öflugustu stofnunum ríkisins í húsnæðismálum. Við erum með Íbúðalánasjóð sem áður var öflugt tæki til að skapa úrræði á húsnæðismarkaði en er núna í gríðarlega erfiðri stöðu fjárhagslega, því miður, eftir margvíslegar rangar ákvarðanir sem teknar voru þar á árum áður. Enn skortir á að við sjáum einhverja heildstæða stefnu um með hvaða hætti á að leysa úr fjármálum sjóðsins og tryggja að hann geti boðið til framtíðar sanngjörn kjör til fjármögnunar á húsnæði og staðið undir þeim skuldbindingum sem hann fyrir hönd skattgreiðenda hefur tekið á sig. En sjóðurinn er sem kunnugt er í mikilli hættu ef uppgreiðslur á lánum í honum verða umtalsverðar. Hér hefur athafnaleysi fyrst og fremst einkennt stjórnarathafnirnar og fulltrúar okkar Samfylkingarinnar í stjórn Íbúðalánasjóðs hafa því miður hver á fætur öðrum ekki treyst sé til þess að sitja í stjórn sjóðsins því þeir hafa talið að ábyrgðarlaust væri að sitja í því aðgerðaleysi sem þar er andspænis þeim mikla vanda sem í sjálfu sér hefur ekki gert annað en að vaxa í stjórnartíð þessarar ríkisstjórnar.