loftslagsmál.
Herra forseti. Krafan er, eins og einhvern tímann var sagt á alþjóðavettvangi, að Ísland dragi úr losun um 40%, ekki bara 40% með innan þess sem Evrópusambandið er að gera, heldur 40% eitt og sér. Það er það sem ég spyr hæstv. ráðherra um: Telur hún að það sé hin rétta krafa fyrir Ísland, að draga úr losunum um 40%, bara við Íslendingar?
Í öðru lagi spurði ég hvort rétt væri að setja stefnuna á kolefnishlutlaust Ísland. Ráðherra talaði um að það væri mikilvægt að breyta orkugjöfum fyrir samgöngur. En styður hún þá stefnumótun? Mun hún styðja þingsályktunartillögu okkar vinstri grænna um að hæstv. ráðherra verði falið að gera aðgerðaáætlun þannig að þingið geti samþykkt aðgerðaáætlun um kolefnishlutlaust Íslands 2050? Styður hæstv. ráðherra það að sú tillaga komist á dagskrá og fáist afgreidd? Það liggur alveg fyrir að ástandið er þannig að við náum ekki einu sinni að halda hlýnun jarðar innan við tvær gráðurnar sem samt eru algjört lágmarksviðmið. Ein og hálf gráða er það sem (Forseti hringir.) þarf ef við ætlum að koma í veg fyrir að til dæmis eyjarnar í Kyrrahafinu sökkvi í sæ.
Og ég spyr svo um olíuvinnsluna aftur.