145. löggjafarþing — 43. fundur,  30. nóv. 2015.

eftirlit með lögreglu.

[15:35]
Horfa

innanríkisráðherra (Ólöf Nordal) (S):

Hæstv. forseti. Eins og hv. þingmaður nefndi þá er þessi skýrsla nýverið komin í mínar hendur. Við fengum hana afhenta á föstudaginn var síðla dags. Ég hef rétt glöggvað mig á efni skýrslunnar og tel skynsamlegt að halda áfram að vinna á grundvelli þeirra tillagna sem þar kom fram

Ég vil sérstaklega þakka nefndinni sem vann þetta mál fyrir hennar störf. Í skilum nefndarinnar eru bæði lagðar fram fullmótaðar tillögur að lagabreytingum, í drögum auðvitað, en líka tillögur að reglum sem ég held að sé afskaplega góður framgangsmáti sem ætti að vera þeim til fyllingar. Mér finnst þarna verið að stíga skref sem æskilegt er fyrir okkur að vinna áfram með í ráðuneytinu, að færa þetta í sérstaka stjórnsýslunefnd.

Ég vek athygli á því að ef minnið svíkur mig ekki þá er niðurstaða nefndarinnar endanleg, ekki er gert ráð fyrir að þarna verði kæruleið til ráðuneytisins sem ég held að sé mjög til bóta. Mér finnst almennt séð skynsamlegt að koma með nefnd sem stendur fyrir utan þetta venjulega stjórnkerfi.

Þó að ég og hv. þingmaður getum kannski deilt um það hversu langt eigi að ganga í fyrsta skrefi þá finnst mér þarna verið að stíga skynsamlegt skref fram á veginn til að feta sig í þá átt að ná utan um þennan viðkvæma málaflokk sem við ræðum oft hér í sölum Alþingis og er sannarlega ekki vanþörf á. Þarna held ég að menn séu að stíga skref til að ná betur utan um þau umkvörtunarefni sem lengi hafa verið í umræðunni í þjóðfélaginu.