145. löggjafarþing — 45. fundur,  2. des. 2015.

lokafjárlög 2014.

374. mál
[17:13]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þær fjárhæðir sem merktar eru Íbúðalánasjóði vegna fjárlaga ársins 2016 eru fyrst og fremst til komnar vegna skuldalækkunaraðgerða stjórnvalda sem valda því að sjóðurinn fær uppgert að minnsta kosti hluta af lánum sem eru útistandandi til hans fyrr en áður hafði verið reiknað með og verður þannig af vaxtatekjum inn í framtíðina. Ríkissjóður gerir ráð fyrir því að bæta sjóðnum þann mismun eins og hann hefur gert fyrir aðra viðskiptabanka.

Ég tel að við þær aðstæður sem uppi eru núna sé engin sérstök ástæða til þess að halda áfram með rekstur sjóðsins á almennum lánamarkaði enda hefur það sýnt sig að almenni húsnæðislánamarkaðurinn keppir ekki bara við Íbúðalánasjóð heldur virðist vera að hann hafi getað boðið betri kjör sem er aftur ástæða þess að margir óska eftir því að fá að gera upp við sjóðinn og flytja viðskipti sín annað.

Eftir situr hins vegar að svara því með hvaða hætti eigi að tryggja að áfram verði hlúð að því hlutverki sjóðsins sem snýr að þeim sem þurfa sérstaka og frekari fyrirgreiðslu, félagsleg lán og ekki síst hvernig aðgangur að lánum utan höfuðborgarsvæðisins verði áfram tryggur, hætti sjóðurinn að veita lán. Þetta finnst mér vera meginverkefnið og það er á forræði (Forseti hringir.) húsnæðismálaráðherrans, félagsmálaráðherrans, sem fer með stjórn bankans í gegnum stjórnina að vinna áfram að þessum málum og að því er unnið.