145. löggjafarþing — 45. fundur,  2. des. 2015.

lokafjárlög 2014.

374. mál
[17:53]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Þetta var nú ekki glæsileg framtíðarsýn sem hæstv. fjármálaráðherra birtir hér fyrir ungt fólk sem þarf að ráðast í það að koma sér þaki yfir höfuðið. Hæstv. ráðherra sagði réttilega að það sem skipti mestu máli væri vaxtakostnaður á Íslandi. Hvað blasir við í þeim efnum? Jú, seðlabankastjórinn hefur lýst því mjög skarpt yfir að það sé líklegt að á næstu tveimur missirum að minnsta kosti, hafi ég skilið hann rétt, sé líklegt að herða þurfi vaxtaskrúfuna, svo að það liggi nú bara alveg ljóst fyrir. Auðvitað kann að vera að það sé tímabundið vegna þess að við erum að sigla í gegnum erfitt tímabil sem felur í sér afnám gjaldeyrishafta og þá þurfi menn að vera við öllu búnir og sjálfsagt að rifa engin segl — en þetta er samt framtíðarsýnin.

Hæstv. ráðherra sagði líka að í sjálfu sér væri ekki hægt að hugsa sér neins konar aðgerðir til að létta ungu fólki lífið í þessum efnum vegna þess að það mundi bara leiða til hækkana. Þá er nú þetta eiginlega það sem við köllum, með leyfi hæstv. forseta, Catch 22. Þá er bara ekkert hægt að gera.

Það finnst mér nú vera heldur mikið ráðleysi af hvaða ríkisstjórn sem er. Ég held að það sé hægt að gera ýmislegt. Mig langar bara að rifja það hér upp að mig rak í rogastans þegar ég las um það að einn vinur okkar á Suðurlandi hefði tekið sig til í Vík í Mýrdal og byggt þar raðhús, 90 fermetra raðhús, sem hann seldi á kostnaðarverði. Það var partur af viðleitni samfélagsins þar til þess að laða að sér nýtt fólk. 16 milljónir, herra trúr. Hvaða ungum Íslendingi mætti ekki bjóða 90 fermetra nýtt húsnæði á 16 milljónir? Svo að eitthvað er nú hægt að gera ef menn koma saman, bæði ríkisvaldið og sveitarfélögin.

Mig langar svo í blálokin að spyrja hæstv. ráðherra einnar spurningar: Fórum við kannski of langt þegar við vorum að hreinsa til eftir kreppuna og í bankaheiminum þegar við bönnuðum lánsveðin? Ástæðan fyrir því að ég gat á sínum tíma keypt mér húsnæði var sú að ég fékk lánað veð hjá foreldrum mínum (Forseti hringir.) og tengdaforeldrum. Allt fór það vel. En getur verið að við séum fullhörð í dag?