145. löggjafarþing — 45. fundur,  2. des. 2015.

vextir og verðtrygging o.fl.

384. mál
[18:40]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Óréttlætið, ef hægt er að kalla það óréttlæti, birtist í ólíku vaxtastigi og þess vegna legg ég alltaf svo mikla áherslu á að við högum okkur með þeim hætti að við getum stuðlað að lægri vöxtum fyrir íslensku krónuna. Það vantar margt upp á enn þá eins og nýafstaðin kjarasamningalota sýnir, að mínu viti.

Við skulum ekki gleyma því að það eru ekki bara kostir við það að taka erlent lán. Nýleg dæmi sýna okkur að erlendum lánum til óvarinna aðila getur fylgt gríðarlega mikil áhætta. Þeir sem komust kannski verst frá áföllum fjármálahrunsins voru þeir sem voru með lögmæt erlend lán sem þeir gátu aldrei fengið leiðrétt. Það eru dæmi um fjölmarga neytendur hér á landi sem enn hafa ekki fengið neina úrbót sinna mála vegna þess að þeir voru með lögmæt erlend lán. Vissulega leit þetta allt saman ágætlega út á meðan viðkomandi naut lága vaxtastigsins, hvort sem það var í japönskum jenum eða svissneskum frönkum eða í hvaða gjaldmiðli sem það kann að hafa verið, en þegar gengisbreytingarnar dundu síðan yfir og viðkomandi var óvarinn fyrir þeim þá varð þetta ein allsherjarhörmung. Við getum því ekki tekið umræðu um möguleikann til þess að taka erlend lán án þess að taka það með í reikninginn hversu mikil áhætta getur verið því samfara fyrir einstaka neytendur sem eru óvarðir.

Síðan er hitt sem ég nefndi sérstaklega í fyrra andsvari mínu: Í þessu frumvarpi er verið að taka tillit til þeirrar uppsöfnuðu áhættu sem getur falist í miklum erlendum lántökum óvörðum fyrir fjármálakerfið í heild sinni.