vextir og verðtrygging o.fl.
Virðulegi forseti. Nei, ég hef ekki aðgang að þeim upplýsingum og í sjálfu sér er frumvarpið tiltölulega hlutlaust gagnvart því. Hér er aðallega verið að horfa til neytendasjónarmiða annars vegar og hins vegar til þess hvernig við verjum best fjármálakerfið fyrir meiri háttar áföllum og einnig peningastefnuna með varúðarreglum.
Álitamálið sem við stöndum frammi fyrir er tvenns konar og er tekist á um þau bæði í þessu frumvarpi. Annars vegar; hvað eigum við að gera í því þegar ESA segir: Þið megið ekki vera með fortakslaust bann við gengistryggingu íslensku krónunnar? Hérna er brugðist við því með ákveðinni útfærslu.
Hins vegar stöndum við frammi fyrir þeirri spurningu að ef við erum komin með regluverk utan um gengistryggð lán til að mæta athugasemdum ESA, ætlum við þá að láta heimildir til þess að taka erlend lán bara standa óhreyfðar? Að það sé sem sagt galopið fyrir það fyrir neytendur að taka erlend lán og jafnvel þannig að kerfisleg áhætta byggist upp þannig að þær lánveitingar séu ekki sérstaklega varðar af greiðslugetu lántakenda, hvort sem það eru heimili eða aðrir? Samræmist það innbyrðis að vera annars vegar með sterkar skoðanir á því hvenær hægt er að hafa gengistryggðu lánin en láta sér það í léttu rúmi liggja hvernig þróun á erlendum lánveitingum verður? Því er svarað neitandi í frumvarpinu. Í raun felst í þessu frumvarpi það svar að ekki gangi upp að vera með strangar kröfur gagnvart gengistryggðum lánum en engar kröfur gagnvart erlendum lánveitingum. Þess vegna er farin sú leið að reyna að sjá til þess að slík lán séu ekki veitt nema að viðkomandi hafi staðist greiðslumat eða geti staðið í skilum þrátt fyrir talsvert mikil áföll. Og svo er gengið lengra og Seðlabankanum veittar heimildir til þess (Forseti hringir.) að skrúfa skrúfurnar enn fastar ef honum sýnist kerfisáhætta vera að byggjast upp.