þjóðaratkvæðagreiðsla um nýja stjórnarskrá.
Forseti. Ég var bara að minna hæstv. forsætisráðherra á að samkvæmt venjunni flytur hæstv. forsætisráðherra málið.
Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort það sé þá ekki alveg örugglega tryggt að það séu fjármunir fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu í fjárlögum fyrst ljóst er að ekki verða greidd atkvæði um stjórnarskrárbreytingarnar samhliða forsetakosningunum. Ef ekki, hyggst þá hæstv. forsætisráðherra flytja breytingartillögu þar að lútandi þannig að hægt sé að tryggja að farið verði í sérstaka þjóðaratkvæðagreiðslu um málið?
Ég vil líka spyrja hvort hæstv. forsætisráðherra sé ekki því fylgjandi, fyrst nú hefur orðið mikil eðlisbreyting á því hvenær farið verður í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu, að störf nefndarinnar verði opnari og hvort þær tillögur sem nefndin er að vinna eigi ekki að vera aðgengilegar almenningi til að koma með álit sitt á. Hvort á það að gerast í störfum nefndarinnar (Forseti hringir.) eða í störfum stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar?