145. löggjafarþing — 46. fundur,  3. des. 2015.

fjáraukalög 2015.

304. mál
[12:33]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni fyrir hans góðu ræðu og fyrir að rifja það upp svona skilmerkilega hvernig staðan var á síðasta kjörtímabili eftir hrunið og hvaða árangur tókst á því kjörtímabili, að stöðva skuldasöfnun ríkissjóðs og koma hér hlutum á réttan kjöl.

Þetta þarf að rifja upp með svona skýrum hætti reglulega því að eins og við urðum vitni að hér áðan þegar hv. þm. Vigdís Hauksdóttir var með sína söguskoðun og túlkun þá brenglar það myndina og skekkir svo mikið að manni fallast hendur. En hv. þingmaður skýrði þetta mjög vel út og rétti okkur við að nýju.

Hv. þingmaður nefndi vegagerð, fjárfestingaráætlunina, Vegagerðina og innviðauppbygginguna sem þar hefði átt að fara í og að aðstæður hafi verið þannig í hagkerfinu að það hefði verið gott að gera það á þeim tíma, en kannski ekki jafn gott núna að fara í stórar framkvæmdir. En nú er vegakerfið orðið þannig um landið að það fer að varða umferðaröryggi.

Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann telji að brugðist sé við þeim vanda í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2016 og hvort þrátt fyrir allt sé ekki nauðsynlegt að fara í meiri nýframkvæmdir í vegagerð, sem virðast eiga að vera í sögulegu lágmarki á árinu 2016, einfaldlega til að bregðast við því að bæta umferðaröryggi eins og staðan er núna.