145. löggjafarþing — 46. fundur,  3. des. 2015.

fjáraukalög 2015.

304. mál
[13:50]
Horfa

Páll Valur Björnsson (Bf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta er góð spurning. Það getur vel verið, a.m.k. fannst mér tónninn í hæstv. forsætisráðherra þannig að hann væri opinn fyrir því. Hann virtist hafa mikinn skilning á því að nauðsynlegt væri að breyta þessu. Ég er bara búinn að vera tvö og hálft ár á þingi og er ekki orðinn pólitískur refur eins og svo margir aðrir. Ég á svolítið erfitt með að grafa það upp og mér er hálfilla við að væna menn um að vilja ekki gera þetta, en samt velti ég því fyrir mér. Kannski var hann að biðja okkur um hjálp, alla vega fannst mér svar hæstv. forsætisráðherra þess eðlis, seinna svarið, að hann gæfi það í skyn að hann vonaðist eftir breiðri samstöðu milli minnihlutaflokka og stjórnarinnar við að leysa þetta mál. Þó að margt megi kannski segja um Framsóknarflokkinn þá slær í honum félagshyggjuhjarta, held ég.

Ég held að menn skilji að það er skynsamlegt og eðlilegt að þetta fólk fái þessar bætur. Það er engum greiði gerður að búa í samfélagi eða láta vera til samfélag þar sem er fátækt. Fólk hjálpar sér nú alltaf einhvern veginn þannig að það deyr ekki úr hungri á Íslandi, sem betur fer. Við erum ekki það langt leidd, en það er vegna þess að fólk reiðir sig á aðra.

Ég þori ekkert að segja um það en þegar maður rýnir í söguna þá hafa verið mikil átök á milli þessara flokka. Það kemur berlega í ljós að það er ekki enn komið að 2. umr. fjárlaga. Það virðist stranda á einhverju. Kannski þurfum við að hjálpa Framsóknarflokknum að knýja á um þessar breytingar. Kannski var hann að kalla eftir því, ég veit það ekki, vonandi.