fjáraukalög 2015.
Herra forseti. Líkt og ég kom inn á í ræðu minni kristallast það svo gríðarlega vel þegar kemur að framkvæmdum, sérstaklega við ferðamannastaðina og svo því sem lýtur að Vegagerðinni, að ekki er gert ráð fyrir peningum í þetta í fjárlögunum eins og það blasir við. Það þarf ekki annað en að hitta fólk, þá veit maður alveg hvað er rætt og það er meðal annars það að styrkja þurfi innviðina vegna hins gríðarlega fjölda ferðamanna. Svo vita allir sem keyra um vegi landsins að löngu er kominn tími á viðhald á þeim á mörgum stöðum.
Þetta eru einhvern veginn svo gríðarlega skýr dæmi um verkefni þar sem ekkert er ófyrirséð í þessu. Þetta eru hlutir sem þarf alltaf að gera ráð fyrir fjármagni í. Þess vegna verður það svo sérstaklega tært að það sé í rauninni verið að fara gegn því hlutverki sem fjáraukalögum er ætlað að gera.
Hins vegar er síðan tiltekið að hlutverk fjáraukalaga er að mæta óvæntum útgjöldum og þar er tekið dæmi af breytingum sem verða vegna kjarasamninga. Þá hefði maður haldið að þar sem verið er að leggja til breytingar vegna kjarasamninga hljóti sá hópur sem er háður ríkinu með afkomu sína að vera þar undir líka og þá er ég vitaskuld að tala um (Forseti hringir.) eldri borgara og öryrkja sem verða, ef breytingartillögur minni hlutans verða ekki samþykktar, líklega eini hópurinn sem fær ekki neinar kjarabætur á árinu 2015.