145. löggjafarþing — 47. fundur,  4. des. 2015.

fjáraukalög 2015.

304. mál
[13:43]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Þetta er mjög veigamikið atriði sem hv. þingmaður kemur inn á og það er að í fjáraukalögum eru teknar alls konar ákvarðanir sem ekki ná því að fá umræðu í þinginu og þetta er svona eitt dæmið enn um það. Mér finnst bera svolítið mikið á því í tíð þessarar ríkisstjórnar, tíðkaðist kannski á árum áður, áður en ég kom á þing, ég var hér bara síðasta kjörtímabil. Þetta er algjör vanvirðing fyrir þinginu. Þinginu kemur þetta ekkert við og ríkisstjórnin ákveður eitt og annað og þá er náttúrulega ágætt að nota fjáraukalögin til þess og ég tala nú ekki um þegar menn geta skutlað 15 milljörðum eða svo inn í fjáraukalögin af því að það var vanáætlað fyrir arðgreiðslum. Manni dettur í hug eins og kom fram í andsvörum áðan hvort það geti verið að menn geri það með vilja að eiga þarna inni fullt af peningum út af arðgreiðslum.

Þá velti ég líka fyrir mér og ég gæti trúað að fólk velti fyrir sér að við höfum talað mikið um ferðamannastaðina og 850 milljónir sem eiga að fara í það, þó kannski ekki fyrr en fólk spurði sjálft sig: En skiptir þá nokkru máli þó að þetta fjármagn hafi ekki verið inni ef allir vissu þetta? Mig langar að biðja hv. þingmann að velta því fyrir sér með mér hvort það skipti ekki máli, jafnvel þótt allir viti eins og sagt er að það eigi eftir að koma fjárveiting þarna inn. Skiptir ekki samt sem áður máli að fara eftir hinum réttu reglum sem settar eru um hvernig á að ákveða fjárútlát ríkisins?