fjáraukalög 2015.
Virðulegi forseti. Hér á eftir gefst þingheimi færi á því að skila elli- og örorkulífeyrisþegum sambærilegum hækkunum, réttlæti í launamálum, til samræmis við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Það er mjög mikilvæg atkvæðagreiðsla og með henni verður fylgst í öllu samfélaginu.
Í þessum fjáraukalögum kemur stjórnarmeirihlutinn líka fram og ákveður að leiðrétta mistök við fjárlagagerð. Honum hefði því líka verið í lófa lagið að bæta úr rekstrarvandanum á Landspítalanum og mæta þjóðarsjúkrahúsinu með fullnægjandi framlögum í breytingartillögum sínum.