145. löggjafarþing — 49. fundur,  8. des. 2015.

fjáraukalög 2015.

304. mál
[14:08]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við greiðum atkvæði um breytingartillögur sem komið hafa fram í fjárlaganefnd við vinnu fjáraukalaga fyrir 2015. Þar munar helst um rúmlega 3 milljarða kr. upphæð sem kemur inn á liðinn Ófyrirséð útgjöld, sem eru afleidd verk þess að farið var í kjarasamninga hjá opinberum starfsmönnum. Sá pottur sem sífellt er þarna inni var tæmdur á árinu og því verður þetta að koma inn í fjáraukalögin nú.

Sá meiri hluti fjárlaganefndar sem nú starfar hefur sífellt talað fyrir því að fjáraukalögin eigi að nota til að setja inn einungis þau óvæntu atvik sem verða til á árinu. Við höfum rýnt þær breytingartillögur og teljum að þær falli að mestu leyti undir þá skilgreiningu, en annars vísa ég í nefndarálit og legg til að þingheimur samþykki breytingartillögur meiri hlutans.