fjárlög 2016.
Herra forseti. Ég vil spyrja hv. þingmann út í tölurnar sem hv. þingmaður nefndi og töfluna í nefndarálitinu þar sem talað er um fjárveitingar til Landspítalans. Við greindum þessar tölur mjög vel í fyrra. Á milli áranna 2013 og 2014 fóru 4,6 milljarðar til Landspítalans og aðeins um 1/3 var veitt til nýrra verkefna, 2/3 fóru í laun, kjarabætur og verðlagsuppbætur.
Ég vil spyrja hvort hv. þingmaður hafi greint þessa tölu með tilliti til þessa, hversu stór hluti hefur farið í ný verkefni. Einnig vil ég spyrja hv. þingmann út í greiningu OECD á fjárveitingum til endurnýjunar, viðhalds, húsnæðis- og tækjakaupa og framþróunar í heilbrigðiskerfinu, þar sem við erum í næstneðsta sæti á milli Grikklands og Mexíkós. Finnst hv. þingmanni það ekki sárt þegar þessi málefni eru samkvæmt ræðu hennar í algerum forgangi hjá ríkisstjórninni?