145. löggjafarþing — 49. fundur,  8. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[18:11]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Það væri nú gott að hafa lengri tíma en tvær mínútur til að svara þessum spurningum. Ég skal reyna að tala hratt. Ég vil bara minna á uppbyggingu hjúkrunarheimila um allt land á krepputímum sem fór fram á síðasta kjörtímabili. Ég er ekki með í kollinum tölurnar sem hv. þingmaður er að kalla eftir eða svör við þeim. Ég man hins vegar vel eftir uppbyggingu hjúkrunarheimila um allt land í gegnum leiguleiðina.

Samningur við sérgreinalækna — ég er að benda á þá vegna þess að þar er gert ráð fyrir magnaukningu. Með sama hætti á að gera ráð fyrir magnaukningu í opinbera kerfinu. Það er það sem ég er að gagnrýna. Af hverju er ekki gert ráð fyrir magnaukningu á Landspítalanum og í opinbera kerfinu yfir höfuð? En gert er ráð fyrir því hjá sérgreinalæknum og í einkareknu heilbrigðisþjónustunni.

Ég er ekkert á móti blönduðu rekstrarformi, en ég er á móti því ef leggja á út í útboð á heilu kerfunum án þess að um það sé tekin umræða í samfélaginu eða hér á Alþingi. Ég er á móti því. Ég vil að við breytum lögunum á þann veg að það sé ekki möguleiki að gera þetta. Þetta er hápólitískt mál og við þurfum að taka um það umræðu.

Ég hef lesið skýrslu sænsku ríkisendurskoðunarinnar og ég skal senda hv. þingmanni slóðina á þá skýrslu. Þar fjallar sænska ríkisendurskoðunin um einkareknar heilbrigðisstofnanir. Margt var þar ágætlega gert en niðurstaðan er þessi: Í hverfum þar sem tekjulægra fólk býr og þar sem félagsleg vandamál voru tíðari þar fór þjónustan versnandi með þeirri breytingu sem gerð var þegar sænsku heilsugæslustöðvarnar voru einkareknar. Það er það sem ég er að vísa í.

Ég er að vísa í það að við eigum að taka um þetta umræðu. Við eigum að læra af öðrum þjóðum en það á ekki að gerast með einhverjum þjónustusamningum milli heilbrigðisráðherra og einhverra vina hans, (Forseti hringir.) leyfi ég mér að segja, því að heilbrigðisþjónusta er ekki útboðsskyld. Það er ekki einu sinni skylda að bjóða út og auglýsa.