145. löggjafarþing — 49. fundur,  8. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[19:25]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Bara til að sýna þessa töflu þá stendur hér árið 2012–2013 12,8 milljarðar, ef þingmaðurinn getur ekki lesið. (Gripið fram í.) — Það stendur veiðigjöld eftir fiskveiðiárum, virðulegi forseti. (Gripið fram í.) Það var það sem við vorum að tala um. Það er EBITDA, leiðrétt eftir veiðigjaldi. Það kemur vissulega þar fram. En ég bendi hv. þingmanni á það (Gripið fram í.) að hér hefur komið fram að veiðigjöldin hafa minnkað og dregist verulega saman á milli ára og það er vegna þess að ákvarðanir ríkisstjórnarinnar hafa gengið í þá átt að lækka veiðigjöldin. (Gripið fram í.) Það er hægt að reikna veiðigjöld út á mismunandi hátt eins og hv. þingmaður á að þekkja. Þegar verið er að tala um að útgerðin skili einhverju til ríkissjóðs skulum við ekki blanda saman veiðigjöldum annars vegar og tekjuskatti hins vegar. Það er alltaf verið að tala um að útgerðin skili í formi tekjuskatts. Við erum að tala um veiðigjöld. Við erum ekki að tala um (Gripið fram í.) tekjuskattinn eins og hér (Gripið fram í.) — nei, virðulegi forseti, það gerir það ekki. Það er sjálfstæð ákvörðun núverandi ríkisstjórnar (Forseti hringir.) að lækka veiðigjöldin. (Gripið fram í: Heyr, heyr!)