fjárlög 2016.
Virðulegi forseti. Ég sé mest eftir að hafa ekki hent fram spurningum sem ég ætlaði einmitt að beina til hv. þingmanns. Ég verð að gera það í næstu ræðu. Ég þakka honum þetta.
Ég vil minna á hvers vegna ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar getur innheimt þennan skatt, vil rifja það upp með hv. þingmanni, og hver afstaða núverandi ríkisstjórnarflokka var þegar höftin voru sett á. (Gripið fram í: Gjaldeyrishöftin?) Já, fyrirgefðu, gjaldeyrishöftin. Það er alveg rétt að hugsanlega hefði verið hægt að innheimta skattinn á síðasta ári síðustu ríkisstjórnar eins og gengur og gerist. En vissulega er það fyrst og fremst þannig, eins og hv. þingmaður nefndi og bjóst við að fá svar við, að stofninn var ekki til og mér hefur sýnst ganga erfiðlega að reikna út fram til þessa. Að minnsta kosti hefur þessari ríkisstjórn ekki tekist það enn sem komið er að innheimta í rauninni skattinn þrátt fyrir allt og er búið að bíða mjög lengi eftir að það verði gert. (Forseti hringir.) Það hefur ekki tekist enn þá. Við skulum ekki gleyma því þó að búið sé að samþykkja einhver lög.