fjárlög 2016.
Herra forseti. Þetta vekur furðu. Samkvæmt því sem ég best veit eru launaútgjöld 83% af rekstri umboðsmanns Alþingis þannig að hin 17% eru væntanlega venjulegur starfskostnaður. Þar fyrir utan þarf umboðsmaður auðvitað að bera lögboðnar skyldur sem eru samtals upp á 7,5–8 milljónir. Mér finnst svolítið hart til orða tekið af hv. þingmanni að það þurfi að endurskoða stofnanastrúktúrinn.
Það er gleðiefni að við séum farin að eyða meiri pening og veita meiri fjármuni í umboðsmann Alþingis. Það er pólitísk ákvörðun að gera svo, enda er þetta ein sterkasta eftirlitsstofnun sem Alþingi hefur. Við eigum að styrkja hana. Hún starfar fyrir okkur. Það er mjög mikilvægt að umboðsmaður Alþingis sé fjárhagslega stöndugur og fjárhagslega öruggur.