145. löggjafarþing — 49. fundur,  8. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[23:39]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Vigdís Hauksdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef nú sjaldan heyrt daprari ræðu frá formanni stjórnmálaflokks en nákvæmlega þessa ræðu, sem hv. þm. Árni Páll Árnason flutti, það verð ég að segja. Það er ótrúlegt hvað þingmenn Samfylkingarinnar geta dregið upp dökka mynd byggða á hálfsannleik og blekkingum. Ég vil í fyrsta lagi benda þingmanninum á það, vegna þess að veiðigjöldin og útgerðin eru gjarnan nefnd, þegar þessir þingmenn eiga í hlut, sem mesta atvinnugrein landsins — það er hægt að henda í hana eins miklum skít og þau hafa í sínum pokum — að á bls. 8 í nefndaráliti 2. minni hluta fjárlaganefndar, hv. þm. Bjarkeyjar Olsen, er tafla sem sýnir að nú árið 2016 eru veiðigjöld að skila sér í sömu krónutölu og þau voru í tíð síðustu ríkisstjórnar árið 2012, upp á krónutölu. Ég er ekki viss um að það séu verðlagsuppfærslur á þessum útreikningi. Fyrir 2013 fór ríkisstjórnin vissulega fram með 13,5 milljarða kröfu á útgerðina í veiðigjöldum, en það var líka kosningaár, það þurfti að fjármagna öll kosningaloforðin í þeirri kosningabaráttu og það var farið víða og reynt að finna pening og gjöld hækkuð, það er alltaf tala sem er miðað við.

Virðulegi forseti. Þessi ríkisstjórn sem sat á síðasta kjörtímabili var kosin svo eftirminnilega frá völdum. Spurningin mín er þessi: Er hv. þm. Árni Páll Árnason búinn að fylgja því eftir sem formaður Samfylkingarinnar að nefndarálit 1. minni hluta, sem fulltrúi hans skrifar upp á, sé farið í prentun? Í því koma fram ósannindi varðandi RÚV þar sem farið er með rangar (Forseti hringir.) tölur og rangar upplýsingar; ég fór upphaflega fram á það í þessari umræðu.