fjárlög 2016.
Virðulegi forseti. Í fyrsta lagi gerum við grein fyrir því í breytingartillögunum í almennri umfjöllun um þær. Það er auðvitað ýmislegt sem ríkisstjórnin hefur gert til að veikja tekjuhliðina frá því að hún tók við, sem skapar mikið svigrúm fyrir okkur til þess að laga það þegar við komum í ríkisstjórn á nýjan leik. Markmið okkar er að búa til heilsteypt tekjuöflunarkerfi sem mismunar til dæmis ekki atvinnugreinum eins og ríkisstjórnin er að gera núna, tekjuöflunarkerfi sem er réttlátt og sanngjarnt og mundi tryggja meiri tekjur en eru fyrir hendi í dag.
Síðan bendum við á einstaka þætti. Sérstaklega vil ég nefna arðgreiðslur úr bönkum. Það er alltaf varhugavert að reiða sig of mikið á slíka þætti sem ekki er endilega gefið að verði alltaf til staðar, en mjög margt af því sem við leggjum til eru einskiptisaðgerðir eða aðgerðir sem eru sérstakar fjárfestingar í innviðum vegna sérstaks ástands. Það á mjög vel við um allt sem varðar vegamálin og uppbyggingu þar. Það á líka við að sínu leyti um viðhaldið á Landspítalanum sérstaklega, þannig að fjölmargir af þáttunum sem við leggjum til eru í eðli sínu þannig að það er ekkert varhugavert að taka arðgreiðslur til þess að fjármagna þá. Síðan þarf að gerbreyta tekjuöflun af atvinnulífinu.
Það er svolítið skrýtið að vera með ríkisstjórn sem er tilbúin að refsa þekkingarfyrirtækjum en hygla framleiðslufyrirtækjum. Það er bara val þessarar ríkisstjórnar. Það er atvinnustefna hennar; þekkinguna út, frumframleiðslu heim. Það virðist vera áherslulínan. Við viljum annars konar atvinnustefnu sem mismunar ekki atvinnugreinum, sem tryggir að allar greinar greiði fyrir aðgang að sameiginlegum auðlindum og þannig verði (Forseti hringir.) full jafnstaða og betri samkeppni (Forseti hringir.) um vinnuafl.