fjárlög 2016.
Herra forseti. Mig langar að spyrja hv. þingmann út í kostnað við að jafna að fullu dreifingu á raforku og niðurgreiðslu á húshitun.
Hv. þingmaður veit að það er búið að stíga ákveðin skref í þessa átt en samt vantar mikið upp á. Það kemur fram í fjárlögum að það vanti 215 milljónir á ári upp á niðurgreiðslur til húshitunar og hvað varðar jöfnunina vanti 65 milljónir.
Sér hv. þingmaður ekki fram á að hægt sé að ljúka þessu verkefni? Það hefur verið talað mikið um þetta en menn stíga aldrei skrefið til fulls. Líka varðandi fjarskiptin. Það er talað núna eins og það sé í höfn að hringtengja svæði utan markaðssvæða, en það kostar um 6 milljarða. Þessi viðbót núna, 200 milljónir, þetta verða þá í allt 500 milljónir, verður hún varanleg eða er þetta einskiptisákvörðun og mun þetta kannski taka 10–15 ár héðan í frá?