145. löggjafarþing — 50. fundur,  9. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[17:11]
Horfa

Ásmundur Einar Daðason (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni að gerð var tilraun til þess á síðasta kjörtímabili að færa safnliðina algjörlega út úr fjárlaganefnd, út úr fagnefndum þingsins, til ráðuneytanna. Það að veita fjármagn til félagasamtaka til að mynda í þriðja geiranum, sem eru fjölmörg — það var reyndar aftur byrjað á því á síðasta kjörtímabili að veita í lítils háttar mæli til slíkra samtaka.

Virðulegi forseti. Það er tvennt sem mig langar að leggja áherslu á í þessu. Í fyrsta lagi er full ástæða til að velta því fyrir sér í hvaða form við höfum komið þessu, þ.e. að setja þetta aftur inn í ráðuneytin, hvort það hafi alfarið verið skynsamlegt, hvort við séum með því að tryggja að mörg þessara litlu jákvæðu verkefna vítt og breitt um landið fái nægilegan sess.

Sá sem hér stendur sagði á síðasta kjörtímabili: Það er í góðu lagi að flytja þetta inn í ráðuneytin, en þá verðum við að hafa tryggingu fyrir því að það valdi því ekki að þessi litlu söfn/setur vítt og breitt um landið, þessir litlu aðilar, verði ekki fyrir meiri niðurskurði … (Forseti hringir.) Ég verð að fá að klára þetta í næsta andsvari.