145. löggjafarþing — 50. fundur,  9. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[18:11]
Horfa

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég skal með gleði gera það. Reyndar var nú þingmaðurinn, fyrirspyrjandinn sjálfur, viðstaddur stærstan hluta fundarins en kannski þó ekki allan. Þar fengum við til fundar við okkur bæði umboðsmann Alþingis og forsvarsmenn lyfjanefndar Landspítalans, lyfjagreiðslunefndar og velferðarráðuneytisins til þess að fara yfir þessi sjúklingakvótamál, að mínu frumkvæði. Þar kom fram að þó svo að ekki sé talað um fjöldatakmarkanir sjúklinga í opinberum gögnum um þetta mál sé fjöldatakmörkun engu að síður reyndin, hún sé raunverulega við lýði.

Hins vegar er starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar og ráðuneytisins, reikna ég nú með, allt að vilja gert til að reyna að leysa þau mál sem upp koma til þess að forða einhverjum alvarlegum mannréttindabrotum.

En það breytir því ekki að fyrirmælin sem lyfjagreiðslunefnd starfar eftir fela í sér að ekki má greiða niður lyf við ákveðnum sjúkdómum eftir að tiltekinn fjöldi sjúklinga hefur fengið þau. Það er með öðrum orðum í raun og veru við lýði sjúklingakvóti í íslensku heilbrigðiskerfi, sem er auðvitað skandall. Við hljótum að sameinast um það hér á þessum vettvangi, þvert á flokka, að afnema það fyrirkomulag.