145. löggjafarþing — 50. fundur,  9. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[18:21]
Horfa

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er nú ekki annað að sjá en að loftslagssjóður sé lagður af í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Þingmaðurinn spyr um 9 milljarða aukningu minni hlutans og telur að þar sé nú ekki mikið sett í innviðauppbyggingu, ég verð að leiðrétta hv. þingmann hvað það varðar. Það er einmitt lögð áhersla á fjárfestingar í innviðum og sóknaráætlun landshluta í tillögu minni hlutans. Sérstakt átak er lagt til í viðhald og nýframkvæmdir í vegagerð enda er þörfin náttúrlega afar brýn. Ef ég man þetta rétt, ég er ekki með plöggin fyrir framan mig, þá held ég að það sé á bilinu 1,5–2 milljarðar sem lagt er til að fari í þennan þátt.