fjárlög 2016.
Forseti. Ég þakka fyrir skjót viðbrögð hv. þingmanns, formanns fjárlaganefndar, að tilkynna alla vega að fundi væri aflýst. Tilkynning um að halda skyldi fund nú í kvöldverðarhléinu barst korter í tíu í morgun. Það eru um það bil níu klukkutímar eða svo sem má gera ráð fyrir því að unnið hafi verið í einhverri gagnavinnslu og líklega fyrr því að það var byrjað að tala um þetta mál í gær og fyrr. Það ætti að hafa verið nægur tími til að vinna þau gögn sem um er talað.
Ég hef unnið þokkalega mikið í gagnavinnslu og sé ekki að það sé nægilega góð útskýring til að ekki sé hægt að mæta á fund og tala um þau málefni sem boðað var til fundarins um.