145. löggjafarþing — 50. fundur, 9. des. 2015.
fjárlög 2016.
1. mál
Forseti. Hv. þingmaður og varaformaður fjárlaganefndar talaði hér áðan um tölur og hvernig þarf að túlka þær og að fólk sé sjaldan sammála um túlkun talna. Mig langar til að leiðrétta það aðeins því að tölur eru bara tölur og tala sínu máli. Jú, það er hægt að ljúga með tölfræði o.s.frv., en það eru orð manna sem þarf að túlka og útskýra betur, bara til að hafa það alveg á hreinu. Tölur tala bara sínu máli.