fjárlög 2016.
Hæstv. forseti. Jú, það eru kostir og gallar í öllum kerfum. Í ráðuneytunum er líka starfandi fólk, einstaklingar, og sama á við um hér. Munurinn er sá að það sem gerist hér er allt fyrir opnum tjöldum. Almenn umræða er um málið og það er það sem máli skiptir. Ég er fylgjandi faglegum vinnubrögðum. Ég er fylgjandi því að fjármagn renni til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til dæmis, sem sveitarfélögin koma síðan að í útdeilingu á og setja sjálfum sér reglur. Ég er fylgjandi því. En ég vil framar öllu fá opna umræðu og opin vinnubrögð. Ég óttast það að ef farið er með allar ákvarðanir undir hina svokölluðu faglegu regnhlíf ráðuneytanna þá fjarlægist það kastljós fjölmiðlanna og fjarlægist þannig þjóðinni. Það er það sem ég hef áhyggjur af.