fjárlög 2016.
Herra forseti. Ég tek undir það, óskin var í rauninni sú að vita um einhverja tímasetningu, ekki það að ekki væri hægt að funda áfram heldur bara tímasetningu. Það er rétt sem hér kom fram að það var sagt af hálfu minni hlutans að í lagi væri að funda fram undir miðnætti. En það væri líka gott að fá það staðfest. Hér eru tveir stjórnarþingmenn á mælendaskrá sem mér sýnist að geti komist að, alla vega annar þeirra upp úr miðnætti og hinn kannski um hálftvö ef við höldum áfram og það er hið besta mál. En ég mundi gjarnan vilja fá að vita hvort ég verð hér fram undir morgun og fari svo beint á fund allsherjar- og menntamálanefndar eða hvort við verðum fram undir klukkan 12, 1 eða 2. Bara fá einhverja tímasetningu. Það er alveg hægt að áætla það og ákveða og ég treysti því að sá forseti sem nú situr hafi fengið um það einhverjar ábendingar. Það hlýtur að hafa verið eitthvað rætt af hálfu stjórnarmeirihlutans og forseta hvenær þinghaldi á að ljúka (Forseti hringir.) og ég ítreka þær beiðnir sem hér hafa komið fram um að reidd verði fram einhver tímasetning.