íslenskukennsla fyrir innflytjendur.
Virðulegi forseti. Hvað varðar þann stóra hóp sem hv. þingmaður nefnir er rétt að horfa til þess að grunnskólinn sem er á forræði sveitarfélaganna hefur þróast og boðið upp á ýmis úrræði. Reyndar er ástæða til að þakka sveitarfélögunum alveg sérstaklega fyrir að mörg þeirra hafa lagt mikinn metnað í þetta verkefni. Aftur á móti má segja að í mjög fámennum sveitarfélögum getur verið erfitt að bjóða upp á móðurmálskennslu fyrir alla nemendurna. Það segir sig eiginlega sjálft og þarf ekki útskýringar við. Aftur á móti opna tæknibreytingar á nýja möguleika hvað það varðar og það er sjálfsagt einmitt að styðja sem best við þá þróun.
Með því að taka vel á móti útlendingum, hvort sem um er að ræða flóttamenn eða bara það fólk sem kýs að koma hingað, búa með okkur hér og starfa með okkur, eru fólgin mikil tækifæri fyrir okkur Íslendinga til að fjárfesta í þessum hópi, sérstaklega börnunum, tryggja að þau læri íslenskuna. Um leið og við lærum tungumálið lærum við líka þau gildi, þær hugmyndir og þann hugmyndaheim sem við erum sjálf sprottin upp úr og (Forseti hringir.) þar með eiga þessir einstaklingar miklu betri tækifæri til að verða hluti af samfélaginu. Það vantar fólk í þetta land og við höfum gott af því að fá aðeins fleiri hingað inn hvað það varðar.