fjárlög 2016.
Hæstv. forseti. Þá liggur það fyrir að sú tillaga sem mest hefur verið rædd í þinginu og hefur orðið tilefni mikilla umræðna, sérstaklega á Facebook, snýst ekki um krónutöluhækkanir heldur prósentur. Ég get alveg talað við stjórnarandstöðuna um ýmis mál, líka um þetta, en það er alveg ljóst að við höfum sett það í ákveðinn farveg að gera breytingar á almannatryggingakerfinu og það er það sem þarf að einbeita sér að og það ætlum við að gera.
En ég ætla að spyrja hv. þingmann og leyfa mér að koma að öðru efni sem eru lyfin, vegna þess að það voru ýmsar rangfærslur í máli hv. þingmanns að því leyti. Ég sit í velferðarnefnd og heyrði þau orð og þá yfirferð sem starfsmenn Landspítalans, þ.e. formaður lyfjagreiðslunefndar og formaður lyfjanefndar Landspítalans, fóru yfir í okkar nefnd og það er rangt að halda því fram að ráðherra hafi sett á einhverja kvóta inni í kerfinu. Röksemdafærsla hv. þingmanns átti þá eins við á síðasta kjörtímabili. Þá var Samfylkingin, sem stýrði þessu ráðuneyti, líka með ákveðnar fjárheimildir inni í heilbrigðismálin sem þýddi að hægt var að gera ákveðið mikið fyrir þær krónur, sem hlýtur miðað við röksemdafærslu hv. þingmanns líka að hafa verið kvóti.