145. löggjafarþing — 51. fundur,  10. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[15:26]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Kristjáni L. Möller fyrir ræðuna. Fyrri hluti ræðu hans var áhugaverður og ég tek undir margt af því sem þar kom fram. Hún var að mörgu leyti ágæt greining á því umhverfi sem við búum við. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að halda því til haga að það er aðeins bjartara yfir okkur. Við höfum tækifæri til að sækja fram ef við höldum rétt á spilunum. Tækifærin blasa við.

Seinni hluti ræðunnar vekur upp spurningar. Hv. þingmaður biðst undan því að ég vitni í einhverjar prósentutölur frá hæstv. félagsmálaráðherra þar sem fram kemur að frá ársbyrjun 2014 hafa bætur almannatrygginga þó hækkað um 17% og á sama tíma hefur verðlag hækkað um 7%, þannig að það hefur þó miðað vel áfram, við hljótum að vera sammála því. Við getum líka verið sammála um það, ég og hv. þingmaður, að auðvitað vildi maður gera betur. Við erum sammála um að við viljum gera betur við þá sem erfiðast eiga. En við stöndum frammi fyrir því verkefni, eins og ég vakti athygli á í ræðu minni í gærkvöldi, að okkur hefur ekki tekist þrátt fyrir áralangar ítrekaðar tilraunir að sníða þá vankanta af almannatryggingakerfinu sem nauðsynlegt er.

Hvernig vill hv. þingmaður hafa mekanismann þegar kemur að ákvörðun á fjárhæð bóta? Telur hann (Forseti hringir.) eðlilegt að Alþingi afgreiði fjárhæðir bóta og hækkun á þeim frá mánuði til mánaðar? Á að taka tillit til verðlags í því efni eða þróunar launa o.s.frv.?