fjárlög 2016.
Forseti. Eins og ég nefndi áður er lykillinn að þessu að þarna er fólk sem er undir lágmarksframfærslu, undir fátæktarmörkum, sem þýðir að það vantar krónur til að ná endum saman. Þegar maður fær prósentuhækkun miðað við aðra heldur maður sama hlutfalli þeirra á milli, en mann vantar fleiri krónur til að ná sömu mörkum og voru áður sett.
Það sem ég er að reyna að kalla eftir er: Hvar á gólfið að vera? Eru það fátæktarmörk, lágmarksframfærsla, eru það ráðstöfunartekjulágmörk? Það er umræða sem við verðum að ná að taka ef við ætlum að leysa þetta.
Það er engin ein ríkisstjórn eða flokkur eða eitthvað svoleiðis sem getur leyst það. Það er ekki atvinnulífið eða aldraðir eða öryrkjar, við verðum öll að taka þátt í þeirri ákvörðun. (Forseti hringir.) Er það hægt? Höfum við ekki reynt það en mistekist? Ég þekki söguna ekki nógu vel.