145. löggjafarþing — 51. fundur,  10. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[15:42]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Samgöngumálin fá snautlega meðferð í þessum fjárlögum og mig langar aðeins að spyrja hv. þingmann út í þau. Í breytingartillögu meiri hlutans við 2. umr. er sitt lítið af hverju sett í ýmsa þætti. Það er athyglisvert að varðandi flugvellina í fjárlagafrumvarpinu, þá er gert ráð fyrir heimild til lækkunar upp á 516 millj. kr. til þessa liðar en síðan kemur meiri hlutinn með 400 millj. kr. í breytingartillögum inn í þennan lið, sem vegur þó ekki upp á móti niðurskurðinum. Enn vantar því 100 millj. kr. upp á þann niðurskurð sem er til þessa málaflokks í fjárlagafrumvarpinu.

Mig langar að spyrja um viðhorf hv. þingmanns gagnvart þessu og samgöngumálunum almennt. Það er verið að setja 235 millj. kr. í vegagerð í breytingartillögum meiri hlutans. Fjármunir til nýframkvæmda, viðhalds vega og rekstrar eru sáralitlir í frumvarpinu sjálfu, eins og hv. þingmaður þekkir. Mig langar líka að heyra viðhorf hans gagnvart því að nú liggur samgönguáætlun ekki fyrir, og menn eru að vinna þetta eftir hendinni ómarkvisst. Í Hafnabótasjóð koma menn með 400 millj. kr. í breytingartillögum vegna þess að það var mjög snautlegt það litla framlag sem var í fjárlögunum.

Hvað finnst hv. þingmanni um þessar reddingar og plástra? Þeir sem fá þetta litla fé til framkvæmda eru fegnir öllu vegna þess að það er ekki yfir miklu að hrópa, sem fyrir er. Ég vil aðeins heyra viðhorf þingmannsins gagnvart þessum þáttum.