fjárlög 2016.
Hæstv. forseti. Já, lítið á ekki neitt er ekki mikið. En mig langaði að spyrja hv. þingmann út í fækkun nemendaígilda, fjármagn til nemendaígilda í framhaldsskólum. Við þekkjum bæði þær breytingar sem orðið hafa varðandi inntöku nemenda í framhaldsskóla, 25 ára regluna svokölluðu í bóknám. Gerð hefur verið könnun sem sýnir fram á að á milli áranna 2014 og 2015 er fækkun í framhaldsskóla upp á 742 nemendur og af þeim fara 400 í bóknám. Þetta virðist um leið bitna mjög harkalega á aðgengi ungs fólks að framhaldsskólunum og sérstaklega á það við um landsbyggðina. Fólk sem hefur af einhverjum orsökum stöðvast í námi og ætlar að halda áfram námi í sinni heimabyggð eftir 25 ára aldurinn hefur ekki þann möguleika að mennta sig til að búa áfram á þessum stöðum. Hvað finnst hv. þingmanni um það?