145. löggjafarþing — 51. fundur,  10. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[16:35]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Mér finnst rétt, af því að það hefur verið mikið til umræðu undir þessum lið, að segja frá því að við héldum opinn fund áðan í hv. fjárlaganefnd með talsmönnum eldri borgara og öryrkja. Ég vil nota tækifærið og þakka fulltrúum þeirra fyrir afskaplega góða og skýra framsetningu á sínum sjónarmiðum. Það er alveg ljóst að þar eru mörg verkefni fram undan. Það var rætt miklu meira en það sem snýr bara að þessum fjárlögum enda eru verkefnin mörg á okkar könnu, en svo sannarlega eru önnur verkefni brýn. Þau snúa til dæmis að húsnæðismálum þessa hóps, sérstaklega fátækari hluta þessara hópa sem eru mjög ólíkir, húsnæðismálum í Reykjavík og ýmsu öðru.

Með nýjum ákvörðunum ríkisstjórnarinnar er búið að setja 22,5 milljarða í lífeyrisgreiðslur. Hækkun á þessu kjörtímabili er um 55 milljarðar þegar allt er tekið, en það eru mikil verkefni fram undan (Forseti hringir.) sem við þurfum að taka föstum tökum. Ég legg sérstaklega áherslu á það varðandi nefnd Péturs Blöndals sem er búin að vinna gott starf en við verðum að klára það verkefni ásamt ýmsu öðru. Ég vonast til þess að við berum gæfu til að ræða þessi mikilvægu mál af yfirvegun og málefnalega því að þetta eru mál sem eiga það skilið.