145. löggjafarþing — 51. fundur,  10. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[17:19]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Mér þykir mjög alvarlegt að vegið sé að starfi umboðsmanns Alþingis. Starf hans skiptir gífurlega miklu máli. Ég þekki eitt dæmi sem ég heyrði í dag þar sem umboðsmaður Alþingis hafði áhrif á það að snúa við niðurstöðu úrskurðarnefndar varðandi niðurgreiðslu fasteignalána í aðgerð ríkisstjórnarinnar. Umboðsmaður Alþingis hefur því gífurlega mikið vægi. Það er ekki gott að vita að skera eigi niður til þess embættis. Við eigum auðvitað að verja það.

Varðandi vegaframkvæmdirnar og hvernig ég sjái fyrir mér að uppbygging vega verði. Við vitum að beðið er eftir að ákveðnir kaflar vítt og breitt um landið og auðvitað mjög stórir kaflar á Vestfjörðum fái varanlegt slitlag. Margir hverjir eru hestatroðningar og kannski ágætt að þingmenn geri sér grein fyrir því að vegirnir, t.d. á Vestfjörðum, eru verri en í Kákasusfjöllum. Ég fór einu sinni um Karpatafjöll í Rúmeníu, fimmtán ára gömul. Þá voru þeir vegir malbikaðir. Þið getið reiknað út ef þið viljið hvað er langt síðan það var. [Hlátur í þingsal.] Svona er þetta nú.

Mér finnst að við eigum að gera átak í því að klára þessa vegi. Þess vegna bíð ég eftir samgönguáætlun. Ég bíð eftir því að sjá að það eigi að leggja vegi eins og yfir Dynjandisheiði, bora Dýrafjarðargöng og ljúka framkvæmdum í Barðastrandarsýslu.

Það má minna á að stærstu framkvæmdir sem farið hefur verið í undanfarin ár og er að ljúka núna eru framkvæmdir í vegagerð sem var farið í eftir hrunið í tíð fyrri ríkisstjórnar.