fjárlög 2016.
Frú forseti. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni um þetta og raunar kom hann inn á það undir lok svars síns sem ég ætlaði að víkja talinu að í næstu fyrirspurn, þ.e. afleiðingar þessarar fjárlagastýringar sem birtist m.a. í því að meina fullorðnu fólki, 25 ára og eldra, innkomu í framhaldsskóla landsins. Ég hefði haldið að það hefði þýðingu að fullorðið fólk sem er jafnvel bundið ákveðnum átthagaböndum og fjötrum og þá sérstaklega konur sem búa úti á landsbyggðinni, bundnar þar yfir börnum og heimili en hafa átt þess kost að sækja framhaldsskólana og nýta sér námsframboð þeirra, sækja ekki inn í skólana lengur, eru fallnar út, 740 manns eru fallin út úr framhaldsskólakerfinu við þessa ákvörðun. Ég hefði talið að þetta væri kannski þýðingarmikið, (Forseti hringir.) ekki síst í ljósi (Forseti hringir.) byggðastefnu. Ef þingmaðurinn vildi upplýsa okkur nánar um sýn sína á það.