145. löggjafarþing — 51. fundur,  10. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[19:26]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Hluti af áhyggjum mínum er tengdur því að Útlendingastofnun virðist alltaf túlka allt eins þröngt og mögulegt er en ekki með mannúð og manngæsku að leiðarljósi. Mig langar í þessu síðara andsvari að koma inn á talsvert annan hlut. Hv. þingmaður fór vel yfir geðheilbrigðismálin í ræðu sinni. Mér fannst bæði fróðlegt og gagnlegt að hlýða á það.

Mig langar að spyrja varðandi þetta, þ.e. varðandi kjörin. Nú á stór hluti af örorkulífeyrisþegum við geðræn veikindi að stríða. Mig langar að spyrja hv. þingmann, sem greinilega er vel að sér í þessum málum: Hvaða áhrif hefur það á bæði börn og fullorðna að búa við fátækt? Hvaða áhrif hefur það á geðheilsuna að eiga ekki fyrir grunnframfærslu?