fjárlög 2016.
Forseti. Við jafnaðarmenn erum auðvitað aldrei sáttir við atvinnuleysi, enda vitum við það að atvinna er eitt af grundvallaratriðum fyrir góð lífskjör.
Ég er ekki sammála hv. þm. Frosta Sigurjónssyni þegar hann segir að þetta séu afarkostir, að taki þjóðir upp evru horfist þær í augu við 20% atvinnuleysi meðal ungs fólks. Það er ekki samasemmerki þar á milli. Það eru fjölmargar þjóðir með evruna þar sem atvinnuleysið er sama og ekki neitt. Sáralítið. Þess vegna er ekki hægt að segja að samasemmerki sé milli þess að vera með evru og vera með atvinnuleysi. Það eru auðvitað aðrar leiðir til í dæminu, eins og Danir til dæmis hafa (Forseti hringir.) farið, að tengja sína krónu við evruna þannig að dregið er úr hagsveiflum. Það gæti verið kostur sem er hugsanlegur fyrir okkur. (Forseti hringir.) En aðalmálið er þetta: Ef við höldum ekki aðildarviðræðum áfram (Forseti hringir.) þurfum við ekki einu sinni að hugsa út í það hvort við eigum að halda þeim áfram.