fjárlög 2016.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Unni Brá Konráðsdóttur fyrir fyrirspurnina. Mig langar að segja, áður en lengra er haldið, að ég hef undanfarna daga og vikur verið að kynna mér málefni flóttafólks og hælisleitenda og sótt fundi og annað því um líkt og ég hef heyrt frá fleiri en einum og fleiri en tveimur að formanni allsherjar- og menntamálanefndar er hrósað fyrir vel unnin störf í þágu þessa málaflokks. Ég hef meira að segja heyrt að hún sé jafnvel í röngum flokki þegar kemur að þessum málaflokki, ætti betur heima með mínum eigin flokki þegar kemur að þessu.
En að því sögðu er einboðið að við getum aldrei verið sú þjóð sem tekur á móti flóttamönnum og hælisleitendum nema allir leggist á árarnar. Sem betur fer hafa bæði Rauði krossinn og Borgarleikhúsið, ríkissjónvarpið og fjölmargir aðrir verið að opna augu okkar og veita okkur aðgang að sögum flóttamanna sem bæði hafa komið hingað og annað í Evrópu. Eitt grundvallaratriði sem allir flóttamenn nefna að sé lykilatriði hvað það varðar hvort þeir nái að fóta sig í nýju landi er það hvort þeir fái vinnu.
Þegar hv. þingmaður og formaður allsherjar- og menntamálanefndar segir að stéttarfélögin hafi dregið lappirnar, finnst mér það mjög alvarlegt mál. Þá finnst mér eðlilegt að við köllum þau til ábyrgðar og leitum svara hjá þeim, hvað það er sem gerir að verkum að þau ætli að draga lappirnar í þessum efnum — sé það rétt sem ég dreg ekki efa, ég dreg ekki orð formannsins í efa. Mér finnst einboðið að þessi litla þjóð sem við Íslendingar erum fagni fólki með nýja þekkingu sem kemur með vinnufúsar hendur og vill taka þátt í atvinnulífinu á Íslandi. Það er dásamleg viðbót.