145. löggjafarþing — 52. fundur,  11. des. 2015.

lengd þingfundar.

[10:38]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Ég er á öndverðu máli við hv. þm. Helga Hjörvar. Ég tel þvert á móti að undanfarnir dagar og umræða þeirra hafi skilað okkur mjög á leið. Umræðan hér bæði í fyrrakvöld og í gærkvöldi og nótt var afar skemmtileg og innihaldsrík. Ég fann ekki betur en að það væri bara góður hljómur í þeim ræðum sem fluttar voru hér í gær og ég hlakka til að heyra fleiri slíkar.

Ég tek hins vegar heils hugar undir með hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni, ég saknaði þess verulega að hafa ekki hér þann mikla heiðursmann hv. þm. Össur Skarphéðinsson. Það hefði lífgað enn upp á stundina ef hann hefði séð sér fært að vera með okkur hér í gærkvöldi og nótt. Hugsanlega gerir hann okkur þann greiða að vera með okkur hér í kvöld og nótt.