145. löggjafarþing — 52. fundur,  11. des. 2015.

lengd þingfundar.

[10:42]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Það er alveg rétt að rifja það þá bara upp að sú hefð var líka til staðar varðandi 2. umr. fjárlaga. Henni lauk nánast alltaf á sama sólarhringnum og hún hófst. (Gripið fram í.) Nánast alltaf, það er rétt. Það er rétt að brotið var í blað, eins og forseti hefur margítrekað, haustið 2012, en forseti telur það algjörlega ástæðulaust að gera það að sérstöku viðmiði þar eftir.