fjárlög 2016.
Virðulegi forseti. Ég hlustaði af athygli á ræðu hv. þingmanns eins og ég geri alla jafna þegar hv. þingmaður ræðir um þessi mál. Ég átta mig að vísu ekki alveg á þegar hann talar um að eftir hrunið hafi verið sparað á öllum stöðum. Það var sparað á sumum stöðum, sérstaklega í heilbrigðismálum. Það var mjög mikið gefið í varðandi eftirlitsstofnanirnar. Þegar þessi ríkisstjórn tók við var fullkomið agaleysi og menn geta lesið um það í skýrslu Ríkisendurskoðunar.
En síðan talar hv. þingmaður mjög mikið um það, og ég hef verið að fylgjast með því, að það sé eitthvað óeðlilegt við að hreyft sé við útgjöldum sem hafa verið frá byrjun ferlisins. Það er svo mikil stofnana- og ráðuneytistrú. Gott og vel. Það er allt í lagi. En ég skil ekki af hverju hv. þingmenn koma þá með tillögur þvert á þetta, bæði sérstakur fulltrúi Bjartrar framtíðar í fjárlaganefnd og líka í tillögum minni hlutans. Ég átta mig ekki á því hvaða stofnanir eru teknar út, t.d. er bara ein heilbrigðisstofnun í alvöru tekin út hvað það varðar þó að það sama eigi við um þær allar. (Forseti hringir.)
Það fyrsta sem ég spyr um er af hverju menn gera þvert á það sem lagt er upp með og sömuleiðis spyr ég um fjármögnun, hún stenst ekki í tillögum minni hlutans.